Fréttatilkynning frá Hlíf Sigurjónsdóttur 21.01.2025


Tónleikar
á Dalvík, í Reykjavík og Danmörku


Á næst­unni halda þau Hlíf Sigur­jóns­dótt­ir fiðlu­leik­ari og Carl Phil­ippe Gion­et píanó­leik­ari ferna tón­leika með tveim­ur mis­mun­andi efnis­skrám.

    Ann­ars veg­ar er klass­ísk efnis­skrá með Fiðlusónötu í B dúr eftir Wolfgang Amadeus Moz­art, Sónötu í c moll eftir Ed­vard Grieg og Fratres eftir Arvo Pärt.

    Hins veg­ar létt „salon“ tón­list með verk­um tón­skálda fyrri alda. Má þar nefna Arc­angelo Cor­elli, Nic­colo Pagan­ini, Hen­ryk Wien­awski, Fritz Kreisl­er, Ed­ward Elgar og yngst­ur er Þór­ar­inn Jóns­son, en hann var fæddur 1896.


•   Í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík fimmtudaginn 30. janúar klukkan 20:00. Klassísk efnisskrá.
•   Í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar sunnudaginn 2. febrúar klukkan 20:00. Salon efnisskrá.
•   Í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar þriðjudaginn 4. febrúar klukkan 20:00. Klassísk efnisskrá.
•   Elvermose á Lollandi í Danmörku laugardaginn 15. febrúar klukkan 16:00. Salon efnisskrá.

Hlíf Sigurjónsdóttir er fædd í Kaup­manna­höfn en ólst upp í Reykja­vík. Hún nam fiðlu­leik hjá Birni Ólafs­syni konsert­meist­ara við Tón­listar­skól­ann í Reykja­vík og fór síðar til fram­halds­náms við Há­skól­ana í Indiana og Toronto og Lista­skól­ann í Banff í Kletta­fjöll­um Kan­ada. Einn­ig nam hún hjá Gerald Beal fiðlu­leik­ara í New York borg. Á náms­árum sín­um kynnt­ist hún og vann með mörg­um merk­ustu tón­listar­mönn­um tuttug­ustu aldar­inn­ar, þar á meðal William Prim­rose, Zolt­an Szek­ely, Gy­örgy Sebök, Rucc­iero Ricci og Igor Oist­rach. Hlíf hefur haldið fjölda ein­leiks­tón­leika og leik­ið með sin­fóníu­hljóm­sveit­um og kammer­sveit­um víða um Evr­ópu, í Banda­ríkjun­um og Kanada.
    Haustið 2014 kom geisla­diskur­inn DIA­LOGUS út hjá MSR Classics í Banda­ríkj­un­um með ein­leiks­verk­um í hennar flutn­ingi, sem sam­in hafa verið sér­stak­lega fyrir hana. Maria Nockin, gagn­rýn­andi Fan­fare Maga­zine, til­nefndi þann disk „CD of the year 2015“. Síðar endur­útgaf sama útgáfu­fyrir­tæki tvö­fald­an geisla­disk, frá árinu 2008, þar sem hún lék allar són­ötur og part­ít­ur fyrir ein­leiks­fiðlu eftir Jo­hann Sebast­ian Bach. Hafa báðir þessir diskar hlotið mikið lof gagn­rýn­enda.
    Hlíf er annt um ísl­enska menn­ingu og sögu klass­ískr­ar tón­list­ar á Ís­landi og sá til dæmis um út­gáfu geisla­­disks 2020 með fiðlu­leik Björns Ólafs­son­ar úr fór­um RÚV og hún hef­ur stað­ið fyrir tón­leik­um þar sem leik­nar voru gaml­ar sögulegar upp­tök­ur, sem að henn­ar undir­lagi voru yfir­færð­ar og hljóð­hreins­að­ar af þessu til­efni. Hlíf hef­ur ver­ið um­sjónar­mað­ur Sumar­tón­leika Lista­safns Sigur­jóns frá upp­hafi.

Carl Philippe Gionet er eftir­sótt­ur ein­leik­ari og með­leik­ari, en ekki síð­ur sem leið­bein­andi og kenn­ari víða um Kan­ada og Evr­ópu. Hann lauk doktors­prófi í píanó­leik við Uni­ver­sité de Montréal undir leið­sögn Paul Stew­art og hef­ur hlot­ið sér­hæfða þjálf­un í með­leik í Austur­ríki og Eng­landi. Hann hefur lagt sig sér­stak­lega eftir menn­ingar­arf­leifð Akadíana og árið 2013 stofn­aði hann Mus­ique sur mer en Acadie sem helg­ar sig miðl­un klass­ískr­ar tón­list­ar með­al franska minni­hlut­ans í Kan­ada. Síð­an 2014 hefur hann verið leið­bein­andi við Breno Italy Inter­nat­ional Music Aca­demy og Centre for Opera Studies and Ap­p­reci­ation í Kan­ada.
    Auk tón­list­ar­inn­ar stund­ar Carl bæði mynd­list og rit­smíð­ar. Hann hef­ur hald­ið sýn­ing­ar á verk­um sín­um beggja vegna Atlants­hafs­ins og í haust sem leið sýndi hann verk sín í Lista­safni Sigur­jóns und­ir nafn­inu Laugar­nes­hug­hrif. Fyr­ir bók sína Icare (Icarus), sem hann einn­ig mynd­skreytti, hlaut hann til­nefn­ingu til Kana­dísku Prix Anton­ine-Maillet − Acadie Vie verð­launanna.