Einleiksverk þessi hafa fylgt mér allar götur
frá námsárum mínum hjá Birni heitnum
Ólafssyni konsertmeistara, en ég var svo
lánsöm
að stunda nám hjá þessum frábæra
tónlistarmanni. Björn áleit sónötur og
partítur Bachs biblíu fiðluleikarans og mér eru
þessi verk mjög hugstæð.
|
Í vetur flytur Hlíf Sigurjónsdóttir allar
sónötur og partítur fyrir einleiksfiðlu eftir J.S.
Bach á þrennum tónleikum í
Háteigskirkju í Reykjavík og í
Vorfrúarkirkju í Svendborg á Fjóni.
Á hverjum tónleikanna má
ennfremur hlýða á nútímaverk fyrir
einleiksfiðlu sem samið hefur verið fyrir Hlíf.
Á fyrstu tónleikunum lék Hlíf
Sónötu númer 1 í g moll og Partítu
númer 1 í h moll eftir Bach og Vetrartré eftir
Jónas Tómasson.
Á þessum öðrum tónleikum
raðarinnar, 26. febrúar, er þess minnst að
liðin eru eitthundrað ár frá því að
einn ástsælasti fiðluleikari
þjóðarinnar, Björn Ólafsson
konsertmeistari fæddist. Leikin verða
Sónata númer 2 í a moll og Partíta
númer 2 í d moll eftir Bach og verkið
Að heiman − þingeysk þjóðlög
í léttum leik sem Rúna Ingimundar samdi fyrir
Hlíf 2012. Þessi efnisskrá verður síðar flutt
í Vorfrúarkirkju í Svendborg á
Fjóni 13. mars og í Hvidbjergs kirkju í Svankjær
á Jótlandi 16. mars næstkomandi.
Hlíf hefur hljóðritað allar
partítur og sónötur eftir J.S. Bach og gaf
þær út á tveimur geisladiskum árið
2008 og voru diskarnir endurútgefnir hjá bandarísku
útgáfunni MSR-Classics
(MS-1605).
Einnig lék hún þær á tvennum
tónleikum í New York borg í janúar
2010 og 2011.
Hafa tónleikarnir og diskarnir hlotið afar
loflega dóma:
|
úr dómum um Bach tónleikana í NY 2010
The concert was absolutely magnificent and exceeded all my
expectations. ... I would recommend her concerts to anyone interested in
hearing one of the most promising, young violinists of our time.
Gerald M. Goldhaber, Ph.D. President and CEO, N.Y.
úr dómum um Bach tónleikana í NY 2011
Hlif Sigurjonsdottir has fantastic tone and interpretive insight,
simultaneously vigorous and lacey delicate. Bach is Bach, and the incredibly
rare performer – a few in each generation – who play like her seem a heavenly
revelation. Bach's canonic writing is glorious.
Mark Greenfest tónlistargagnrýnandi í NY, sem ritar
dóma m.a. fyrir NMC Newsletter
úr dómum um
geisladiska hennar með einleiksverkum Bachs:
Sigurjónsdóttir's phrasing is crystalline clear.
(In different close hearings a couple of months apart I found myself writing
down this same phrase.) Her music breathes and details are masterfully shaded.
Her tempos are not rigid and her timings, of individual movements, are both
slower and faster than other players.
The Mount Everest of these Himalayas, the great Ciaccona (Chaconne) in
Partita No. 2, receives particular care from Sigurjónsdóttir as
she explores all the great features in this long (15:48) work in ways that
make it continually engaging for the listener. Her pacing here is absolutely
perfect as she forms what is initially a rather square-toed conception into
a thing of exquisite beauty. Without sacrificing any of its fluidity, she
employs discrete variations in tempo, as in the passages of increasing urgency
that set the stage for the wonderful moment of relaxation that steals upon us
at just about the midpoint of the Chaconne. You don’t have to be terribly
learned musically to realize that something wonderful has transpired in
Bach’s monumental set of variations on a ground bass.
Sigurjónsdóttir does the hard work for you, so just sit back
and enjoy!
Þessa dóma og aðra má lesa á
heimasíðu Hlífar.
Hlíf Sigurjónsdóttir er fædd í Kaupmannahöfn
en ólst upp í Reykjavík. Hún nam fiðluleik hjá
Birni Ólafssyni konsertmeistara við
Tónlistarskólann í Reykjavík og fór
síðar til framhaldsnáms við
Háskólana í Indiana og Toronto og Listaskólann
í Banff. Einnig nam hún hjá Gerald Beal fiðluleikara í
New York borg. Á námsárum sínum kynntist hún
og vann með mörgum merkustu tónlistarmönnum
tuttugustu aldarinnar, þar á meðal
William Primrose, Zoltan Szekely, György Sebök, Rucciero Ricci og
Igor Oistrach.
Hlíf hefur haldið fjölda einleikstónleika
og leikið með sinfóníuhljómsveitum
og kammersveitum víða um Evrópu, í
Bandaríkjunum og Kanada. Haustið 2014 kom
geisladiskurinn DIALOGUS út hjá
MSR Classics
í Bandaríkjunum með einleiksverkum í
hennar flutningi, sem samin hafa verið sérstaklega fyrir hana.
Maria Nockin, tónlistargagnrýnandi Fanfare Magazine,
tilnefndi þann disk CD of the year 2015. Haustið 2015
endurútgaf sama útgáfufyrirtæki
tvöfaldan geisladisk, frá
árinu 2008, þar sem hún lék allar sónötur
og partítur fyrir einleiksfiðlu eftir Johann Sebastian Bach.
Hafa báðir þessir diskar hlotið mikið lof
gagnrýnenda.
|